13.11.2007 | 22:27
Múslimar eða múslimatrú.
Við hjónin fórum í heimsókn Bangladesh fyrir stuttu. Múslimar eru þar tæplega 90% íbúa, rúmlega 10% eru hindúar, og öðruhvorumegin við 1% eru kristnir og aðrir trúarhópar. Ég umgekkst því sem næst eingöngu múslima í þessari heimsókn. Í Bangladesh er mikil virðing borin fyrir náunganum og lífsviðhorfum hans. Ekki eina einustu stund varð ég var við andúð á mér sem vesturlandabúa, ekkert nema kurteisi og hógværð.
Því miður er það svo í dag að við lítum á múslima í heild sinni sem hryðjuverkamenn eða þaðan af verra. Því er um að kenna fjölmiðla umfjöllun sem við búum við. Eftir mín stuttu og ánægjulegu kynni af múslimum í Bangladesh, er ég sannfærður um að sá fréttaflutningur sem við fáum af múslimum í dag, er aðeins umfjöllun um brotabrot þeirra sem ástunda þessi trúarbrögð.
Við gætum spurt okkur að því, hvernig við litum á kristnidóminn og þá sem ástunda þá trú, ef einu fréttirnar sem við fengum væri um ástandið á Norður Írlandi og fulltrúi ástandsins væri Ian Paisley.
Einnig vil ég taka það fram að mér finnst sjálfsagt mál að múslimar fái að reisa sér mosku hér á Íslandi.
Mér finnst fullkomlega eðlilegt að múslimar geti reist mosku sína hér á landi.
Meginflokkur: Trúmál og siðferði | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.